Monday, September 17, 2012

Nýja fjölskyldan


Núna er ég komin til fjölskyldunnar sem ég átti alltaf að fara fyrst til, hélt að ég ætti ekki að koma hingað fyrr en eftir mánuð en svo var ekki, þetta var víst bara einhver misskilingur. Ég er búin að vera hjá þeim í næstum 2 vikur og lýst mér bara ofboðslega vel á þau. Þau eiga heima í risastóru húsi á 4 hæðum og ég er ein á neðstu hæðinni með sérklósett og alles, mjög fínt! En þau eru allt öðruvísi en fjölskyldan sem ég var fyrst hjá, þau eru miklu ríkari, fínni og svolítið snobbuð.. Þegar þau komu að sækja mig þangað sem ég bjó fyrst þá horfðu þau á húsið og spurðu með þvílíkum fyrirlitningartón, “bjóstu hérna?” og ég alveg “jáá.. og fannst það rosalega fínt!” En þau eru samt ekki alltaf svona, eru rosalega yndisleg og vilja gera allt fyrir mig, eins og það fyrsta sem þau sögðu þegar við komum að húsinu í fyrsta skipti var, “þetta er húsið okkar, nei fyrirgefðu núna er þetta líka húsið þitt” sem mér fannst rosalega gott að heyra. 



Sæta fjölskyldan mín



Húsið mitt



Ég og sæta frænka mín


 Sæti voffinn minn nýbúinn í baði


Fyrstu helgina sem ég var hérna hjá þeim fórum við á ströndina, þau eiga íbúð á ströndinni sem er mjög fín en þau eru að fara að kaupa aðra sem er þvílíkt flott. Við fórum með fjölskyldu mömmunnar, systur hennar og dóttur og bróður hennar, konu og strákunum þeirra 2. Eftir 5 tíma keyrslu komum við loksins á ströndina og varð ég fyrir þvílíkum vonbrigðum þar sem það var engin sól.. Það var meiri sól í Quito, lengst upp í fjöllunum, en allavega þá gat ég ekkert gert í því, en þeim fannst þetta voða nice þar sem ég held að þau þoli ekki sól, enda eru þau nú þegar mjög brún og vilja ekkert vera að tana, annað en ég. Um kvöldið fórum við svo á þvílíkt flottan pizza stað á stað sem heitir Casa Blanca, það er lítill bær sem rosalega ríkt fólk á heima og húsin eru öll hvít. Á laugardeginum var svo sem betur fer ekkert smá gott veður, glampandi sól og blíða, þá loksins gat ég verið í smá sólbaði, á meðan þau voru öll undir sólhlíf allan daginn.. Það kvöld fórum við svo á rosalega stórann markað og eftir á fórum við á salsa stað sem var mjög gaman. Ég þarf virkilega að fara að læra salsa svo að ég passi eitthvað inn í hérna..



Við sundlaugina á ströndinni


Sætu systur mínar og frænka og frændi


Sætasta barn sem til er


                                                                   


                                                                Svo góð pizza, mm..


Á salsabarnum með frænku og pabbanum 
         

 Fallega ströndin


En síðustu vikurnar eru ekki búnar að vera skemmtilegustu vikur lífs míns, því ég er ekki ennþá byrjuð í skólanum svo að mér er búið að leiðast alveg hrikalega á daginn. En ég á að byrja í skólanum í þessari viku svo að vonandi verður þetta betra þá. Helgin var líka mjög fín, á föstudaginn fór ég í bíó með fjölskyldunni, á Batman, og auðvitað á spænsku haha.. Ég skildi ekki neitt og sofnaði svona 17 sinnum, en sem betur fer var ég búin að sjá myndina svo að ég var allavega ekki að missa af neinu sérstöku. Eftir bíóið fórum við svo og fengum okkur Macdonalds, það var unaðslegt, er búin að vera að bíða eftir því lengi! Á laugardaginn fór ég svo með mömmunni og  stelpunum í klippingu og fékk ég ekki bara þvílíka greiðslu, endaði eins og fermingarbarn með ljóta greiðslu, een það var bara gaman og að auki fékk ég rosalega fína naglasnyrtingu! Þegar við vorum búnar allar í hár- og naglasnyrtingu kom pabbinn að sækja okkur og við fórum í mallið að borða, þau gera það víst alltaf um helgar. Um kvöldið komu svo vinafólk mömmunar og pabbans í matarboð og bjóst ég við kvöldi þar sem ég sæti, borðaði og endaði með hausverk því að ég þyrfti að hlusta á svo mikla spænsku og skilja voða lítið, eeen svo var ekki! Þetta var bara yndislegasta fólk sem ég hef hitt! Þau voru 2 hjón, ein mjög ung og hin ekki mikið eldri, og þau töluðu eiginlega bara ensku fyrir mig og voru endalaust að spyrja um Ísland og ef þau voru eitthvað að tala á spænsku enduðu þau alltaf á að þýða allt fyrir mig og segja mér hvað þau voru að tala um, sem var rosalega nice og þægilegt. Á sunnudeginum fór ég svo í sund með pabbanum og hélt að þetta yrði voða fín útisundlaug þar sem ég gæti bara legið og tanað, en neii haha, þetta var bara venjuleg innilaug þar sem það var ein regla: allar konur þurfa að vera með sundhettu.. Þegar konan kom og sagði mér að setja sundhettuna á mig þá sagði ég bara pabbanum að ég ætlaði út í sólbað þangað til hann væri búinn að synda! Ég hef aldrei sett á mig sundhettu og ætla mér ekki að gera það bráðlega. Eftir sundið fórum við svo í hádegismat til systur mömmunar, og þar hitti ég ömmuna og afann og alla, það var mjög fínt! 



Það sætasta sem ég hef séð, langaði að stela honum úr búðinni!


Flottar í hárþvotti og naglasnyrtingu


Bíó stuð


Mmm Macdonalds



Þrátt fyrir að mér er búið að leiðast alveg hrikalega og kann ekki mikið í spænsku og ekki búin að kynnast neinum þá er fjölskyldan samt búin að gera þetta rosalega auðvelt fyrir mig og ég er ekkert smá heppin með hana! 

Blogga næst þegar ég er byrjuð í skólanum :) 





No comments:

Post a Comment