Thursday, October 18, 2012

Skólinn og fleira

Jææja, núna er ég búin að vera hérna í Ekvador í sirka 1 og hálfann mánuð og þetta er búið að vera skrautlegasti tími lífs míns hingað til. Þetta er búið að vera erfitt en líka skemmtilegt og áhugavert og aðallega reynsluríkt.

Ég byrjaði í skólanum fyrir sirka 3 vikum, ég þurfti að byrja á því að kaupa skólabúninginn, hélt að þetta væri bara pils bolur og peysa eða eitthvað, en nei. Ég þurfti að kaupa mánudagsbúning (fíni búningurinn), þriðjudags/fimmtudagsbúning (íþróttabúningur) og miðvikudags/föstudagsbúning (venjulegi búningurinn), hef aldrei fengið jafn mikið sjokk og þegar hún rétti mér reikninginn, 238 dollararr, og fyrir þessi hræðilega ljótu föt, þessum pening væri mun betur eitt í einhverju af mollunum hérna í Quito! En allavega kom ég í skólann í miðjum skóladeginum, í miðjum efnafræðitíma, ég hélt ég myndi deyja úr athygli, hef aldrei fengið svona mikla athygli á æfi minni. Ég kom inn í stofunni og krakkarnir bara gátu ekki hætt að stara á mig og áhuginn á mér leyndi sér sko ekki. Ég var svo boðin velkomin og svo voru allir krakkarnir alveg sestu hjá okkur sestu hjá okkur! Fyrstu dagana sem ég var í skólanum var afmælisvika skólans og þá þurftu alir krakkarnir að marsera í sirka 2 klukkutíma á dag, í 25 stiga hita og glampandi sól! Sem betur fer þurfti ég ekki að gera þetta því ég var ný og kunni ekki að marsera og svona haha, kunni ekki að labba á staðnum.. Svo einkenndust dagarnir á því að skólastjórinn og aðrir yfir skólanum héldu endalausar ræður sem virtust heil eilífð hjá mér því þær voru auðvitað á spænsku og við þurftum að standa í beinum röðum á fótboltavellinum að horfa á, lengstu stundir lífs míns.  En já ég er allavega í bekknum 6°QB2 og það eru elstu krakkarnir í skólanum, þau eru öll einu ári yngri en ég, en eru flest eins og þau séu svona 5 árum yngri.. En eru öll alveg rosalega yndisleg við mig og er búin að eignast mjög góða vini í skólanum, og rosalega fyndið að nánast allir í skólanum vita hvað ég heiti og ég fæ svona 100 kossa á kynnina á hverjum degi, en ég veit ekki 5% af nöfnunum þeirra haha.

Mánudagsbúningurinn


Miðvikudags/fimmtudagsbúningurinn


Flottustu skór sem ég hef átt!

Skóladagurinn er ss þannig að hann byrjar klukkan 7 og endar klukkan 13:40, hver tími er 45 mínútur, en fyrir mér er hver tími eins og 3 klukkutímar, og svo fáum við bara 2 hlé á dag, eitt klukkan 10 í korter og eitt klukkan 12 einnig í korter. Ég er á náttúrufræðibraut þannig 90% af bekknum mínum eru að fara í læknisfræði á næsta ári og tímarnir sem ég er í eru erfiðir á íslensku, hræðilegir á ensku og ómögulegir á spænsku, ég er t.d. í líffræði, eðlisfræði, efnafræði, anotomy(veit ekki hvernig það er á íslensku) og ýmsum öðrum tímum sem ég bara get ekki skilið eitt orð í.. Svo að skóladagurinn minn einkennist mjög mikið af því að sofa, lesa, hlusta á tónlist og teikna. Einnig gaman að segja frá því að ég þurfti að taka próf í Anotomy um daginn, það fag snýst um mannslíkamann, beinin, líffærin og fleira, hef ekki lært það á íslensku og kennarinn ætlaðist bara til þess að ég kynni þetta og það líka svona vel á spænsku, ég hló nú bara en tók samt prófið, fékk 1/2 á prófinu, vúhú!! Ekki 0 allavega! Kennarnarnir eru líka allir rosalega misjafnir, sem er nú eiginlega alltaf málið með kennara, ég elska enskukennararnn minn, og hann elskar mig því að ég er svona rosalega góð í ensku, allavega miðað við krakkana hér. Ég þarf alltaf að hjálpa honum með allt, en þarf aldrei að gera nein verkefni eða neitt því ég "kann þetta allt" segir hann allavega, sem er snilld. Aðrir kennarar eru flestir rosalega leiðinlegir, þurfum alltaf að standa upp þegar þeir koma inn og standa þangað til þeir leyfa okkur að setjast, og svo byrjar tíminn yfirleitt á einhverri skammarræðu, eða ég held, lítur allavega alltaf út eins og þeir séu að skamma okkur.. En hvað veit ég svo sem, skil varla neitt sem þeir segja.
Í hléunum rölti ég annað hvort bara eitthvað um skólalóðina með krökkunum eða hitti skiptinemana, við erum 7 skiptinemar í skólanum sem ég er frábært, við gerum oft eitthvað beint eftir skóla og svona sem er mjög skemmtilegt.


Marseringar í gangi

Sætu bekkjarfélagar mínir 

Við skiptinemarnir hérna í Quito erum orðnir rosalega góðri vinir, það eru 5 krakkar frá Þýskalandi (mjög pirrandi stundum þar sem þau elska að tala þýsku), 2 frá bandaríkjunum, nokkrir frá Ítalíu, erum ekki mikið með þeim samt, 2 frá Japan, þau halda sig líka mjög mikið út af fyrir sig, svo ein stelpa frá Finnlandi. Við gerum margt skemmtilegt saman, en förum oftast á einn stað þar sem við borðum og höfum gaman eða förum í mallið. Ég fór fyrir sirka 3 vikum held ég á tónleika með LMFAO með skiptinemunum Piu, Veru og Fynn (öll frá Þýskalandi, getið ímyndað ykkur hvernig mér leið..). Tónleikarnir voru smá vonbrigði, LMFAO kom bara í sirka 2 tíma í endann og var bara einn meðlimurinn sem mætti.. En allavega þetta var samt bara gaman og mikið dansað og mikil gleði!


Ég, Pia, Vera, Fynn og einhverjir Ekvadorar


Íslendingur og Þjóðverjar 

Seinustu helgina í September fórum við svo í svona 6 week camp með Afs, þar átti ég að hitta Svönu, sem er líka skiptinemi hérna í Ekvador, en hún býr í Guaranda sem er sirka 5 tímum frá Quito. Við vorum ekkert smá spenntar að hittast og ég held að ég hafi aldrei verið jafn ánægð að hitta manneskju og þegar ég hitti hana, vá hvað það var gaman að fá að tala íslensku við einhvern eftir mánuð af eintómri spænsku og ensku! Við fórum til Ibarra sem er lítill bær sirka 2 tímum frá Quito og vorum þar á voða fínu hóteli með æðislegri sundlaug og svona huggulegheit. Þetta var mjög skemmtileg helgi, þarna töluðu allir um vandamálin sín hjá fjölskyldunum og svona, ég var ein af þeim sem var með nokkuð mikið af vandamálum , en við ræddum þau og komust að niðurstöðu um það og segi ég það ykkur seinna í blogginu. En þarna kynntist ég skiptinemum alls staðar úr heimnum, Japan, Ítalíu, Frakklandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Belgíu o.fl. Við skemmtum okkur líka vel, fórum í leiki og sund og ýmislegt fleira. En á endanum þurfti ég að kveðja alla og það var mjög leiðinlegt þar sem ég hitti flesta krakkana ekki fyrr en í Janúar.. :( En ég og Svana ætlum nú að reyna að hittast bráðum, líklegast fara á Pitbull tónleika hénra í Quito í enda Október! Gaman gaman.


Ég og Svanan mín í búðunum 


Aðeins of nice í sundlauginni


Sundlaugin við hótelið




Þar seinustu helgi fór ég bæði með fjölskyldunni í miðbæinn og einnig í bæ sem heitir Otavalo. Í miðbænum skoðuðum við allskonar fallegar kirkju og byggingar. Kirkjunar hérna eru eins og listaverk, alveg ótrúlegt, stærsta kirkjan hérna er öll úr gulli að innan og ef fólk vill gifta sig þar þá er sirka 2 ára biðlisti og það þarf að borga rosalegan pening fyrir það, allt fræga fólkið í Ekvador giftir sig þar, ef maður vill skoða kirkjuna þarf að borga sig inn og það má alls ekki taka myndir, starfsmennirnir elta mann út um allt til að við tökum ekki myndir.. Eftir daginn fórum við svo á eitt dýrasta hótelið í Quito og fengum að borða, mjög týpískan Ekvadorískan mat og svona, mjög nice dagur.

Fallega kirkjan, allt í gulli

Fyrir framan fallegu kirkjuna


Í miðbænum


Týpískur Ekvadorískur matur, Ceviche og popp



Þar seinustu helgi fór ég svo í bæ sem heitir Otavalo með fjölskyldunni, Þau sögðu við mig, já við leggjum af stað klukkan 7 og komum heim um 4, við lögðum af stað hálf 9 og komum heim hálf 11 um kvöldið, Suður ameríkanar.. En þetta var mjög skemmtilegur dagur þrátt fyrir þetta tímarugl, í bænum er einn stærsti markaður held ég bara í Ekvador, hann er svona 7 götur, við komumst niður eina götu og þá var dagurinn búinn, riisastórt! Eftir markaðinn fórum við í svona "park" sem er á toppi á einu fjalli í Otavalo og þetta er einhversskonar fuglagarður til heiður fugli Ekvadors, sem er ef ég hef rétt fyrir mér hrægammur á íslensku, já, hrægammur er fugl Ekvador.. Gátu þeir ekki valið einhvern aðeins fallegri fugl? Hann er á Ekvadoríska fánanu og allt.. Við allavega löbbuðum í kringum allan garðinn og skoðuðum fugla í búrum, guð hvað ég vorkenndi þeim, að þurfa að vera í búrum þegar þeir geta verið að fljúga frjálsir á þessum fallega stað. En svo endaði túrinn á þessari "glæsilegu" fuglasýningu, þar sem starfsmaður sýndi okkur 3 fugla og svo endaði það á því að ég mátti halda á einum, jeij. Dagurinn endaði svo þannig, eða ég hélt að hann mundi enda þannig að við fórum að borða, fengum fritadas, sem er mjög týpískur Ekvadorískur matur, það er risastór diskur, allir deila einum disk, hann samanstendur af einhversskonar svínakjöti, baunum, eitthverju grænmeti sem er ekkert bragð af og kartöflum, svo háma allir þetta bara í sig þangað til það er ekki ein baun eftir á disknum. Eftir matinn keyrðum við af stað og hugsaði ég með mér, loksins förum við heim, þar sem klukkan var nú orðin 9 um kvöldið og ég mjög þreytt eftir daginn, en nei. Við fórum á kaffihús þar sem þau þurftu endilega að fá sér kaffi, endaði þannig að ein stelpan var grenjandi því hún var svo þreytt og nennti ekki að vera þarna, ég sofnaði í stólnum og hin stelpan í fanginu á pabba sínum.. Held þau áttuðu sig loksins á því að við þurftum virkilega að komast heim. En samt sem áður góður dagur.


Otavalo í bakgrunn


Gaman gaman


Otavalo


Sæti fuglinn


 En því miiður voru rosalega mörg vandamál hjá þessari fjölskyldu og ég er búin að skipta núna aftur til welcome fjölskyldunnar minnar, skipti í seinustu viku og sama dag kom þýskur skiptinemi, Pia líka til þessarar fjölskyldu þar sem hún þurfti líka að skipta um fjölskyldu og fjölskyldan hennar nánast henti henni út svo að hún þurfti að koma hingað í viku og hún fer á laugardaginn. Þetta er búið að vera bæði skemmtilegt og erfitt að búa hérna með henni, ég er eina stelpan í fjölskyldunni minni heima á Íslandi, vön að vera eina prinsessan á heimilinu. En núna erum við tvær og úff.. Getur verið rosalega erfitt að vera tvær svona stelpur haha. En það er líka búið að vera mjög gott að hafa hana því við erum að ganga í gegnum sömu hlutina með að skipta um fjölskyldu og svona.


Búa til ís á laugardagsmorgni
Mmm..
En ég hef ekki mikið annað að segja, sakna allra rosalega mikið og heimþráin gýs oft upp "out of no where" eins og maður segir á góðri íslensku, en þetta fer nú að batna, finn það alveg :) En reyni að vera duglegri að blogga!

Þangað til næst,
Buenas noches, chao! (spænskan öll að koma)






Monday, September 17, 2012

Nýja fjölskyldan


Núna er ég komin til fjölskyldunnar sem ég átti alltaf að fara fyrst til, hélt að ég ætti ekki að koma hingað fyrr en eftir mánuð en svo var ekki, þetta var víst bara einhver misskilingur. Ég er búin að vera hjá þeim í næstum 2 vikur og lýst mér bara ofboðslega vel á þau. Þau eiga heima í risastóru húsi á 4 hæðum og ég er ein á neðstu hæðinni með sérklósett og alles, mjög fínt! En þau eru allt öðruvísi en fjölskyldan sem ég var fyrst hjá, þau eru miklu ríkari, fínni og svolítið snobbuð.. Þegar þau komu að sækja mig þangað sem ég bjó fyrst þá horfðu þau á húsið og spurðu með þvílíkum fyrirlitningartón, “bjóstu hérna?” og ég alveg “jáá.. og fannst það rosalega fínt!” En þau eru samt ekki alltaf svona, eru rosalega yndisleg og vilja gera allt fyrir mig, eins og það fyrsta sem þau sögðu þegar við komum að húsinu í fyrsta skipti var, “þetta er húsið okkar, nei fyrirgefðu núna er þetta líka húsið þitt” sem mér fannst rosalega gott að heyra. 



Sæta fjölskyldan mín



Húsið mitt



Ég og sæta frænka mín


 Sæti voffinn minn nýbúinn í baði


Fyrstu helgina sem ég var hérna hjá þeim fórum við á ströndina, þau eiga íbúð á ströndinni sem er mjög fín en þau eru að fara að kaupa aðra sem er þvílíkt flott. Við fórum með fjölskyldu mömmunnar, systur hennar og dóttur og bróður hennar, konu og strákunum þeirra 2. Eftir 5 tíma keyrslu komum við loksins á ströndina og varð ég fyrir þvílíkum vonbrigðum þar sem það var engin sól.. Það var meiri sól í Quito, lengst upp í fjöllunum, en allavega þá gat ég ekkert gert í því, en þeim fannst þetta voða nice þar sem ég held að þau þoli ekki sól, enda eru þau nú þegar mjög brún og vilja ekkert vera að tana, annað en ég. Um kvöldið fórum við svo á þvílíkt flottan pizza stað á stað sem heitir Casa Blanca, það er lítill bær sem rosalega ríkt fólk á heima og húsin eru öll hvít. Á laugardeginum var svo sem betur fer ekkert smá gott veður, glampandi sól og blíða, þá loksins gat ég verið í smá sólbaði, á meðan þau voru öll undir sólhlíf allan daginn.. Það kvöld fórum við svo á rosalega stórann markað og eftir á fórum við á salsa stað sem var mjög gaman. Ég þarf virkilega að fara að læra salsa svo að ég passi eitthvað inn í hérna..



Við sundlaugina á ströndinni


Sætu systur mínar og frænka og frændi


Sætasta barn sem til er


                                                                   


                                                                Svo góð pizza, mm..


Á salsabarnum með frænku og pabbanum 
         

 Fallega ströndin


En síðustu vikurnar eru ekki búnar að vera skemmtilegustu vikur lífs míns, því ég er ekki ennþá byrjuð í skólanum svo að mér er búið að leiðast alveg hrikalega á daginn. En ég á að byrja í skólanum í þessari viku svo að vonandi verður þetta betra þá. Helgin var líka mjög fín, á föstudaginn fór ég í bíó með fjölskyldunni, á Batman, og auðvitað á spænsku haha.. Ég skildi ekki neitt og sofnaði svona 17 sinnum, en sem betur fer var ég búin að sjá myndina svo að ég var allavega ekki að missa af neinu sérstöku. Eftir bíóið fórum við svo og fengum okkur Macdonalds, það var unaðslegt, er búin að vera að bíða eftir því lengi! Á laugardaginn fór ég svo með mömmunni og  stelpunum í klippingu og fékk ég ekki bara þvílíka greiðslu, endaði eins og fermingarbarn með ljóta greiðslu, een það var bara gaman og að auki fékk ég rosalega fína naglasnyrtingu! Þegar við vorum búnar allar í hár- og naglasnyrtingu kom pabbinn að sækja okkur og við fórum í mallið að borða, þau gera það víst alltaf um helgar. Um kvöldið komu svo vinafólk mömmunar og pabbans í matarboð og bjóst ég við kvöldi þar sem ég sæti, borðaði og endaði með hausverk því að ég þyrfti að hlusta á svo mikla spænsku og skilja voða lítið, eeen svo var ekki! Þetta var bara yndislegasta fólk sem ég hef hitt! Þau voru 2 hjón, ein mjög ung og hin ekki mikið eldri, og þau töluðu eiginlega bara ensku fyrir mig og voru endalaust að spyrja um Ísland og ef þau voru eitthvað að tala á spænsku enduðu þau alltaf á að þýða allt fyrir mig og segja mér hvað þau voru að tala um, sem var rosalega nice og þægilegt. Á sunnudeginum fór ég svo í sund með pabbanum og hélt að þetta yrði voða fín útisundlaug þar sem ég gæti bara legið og tanað, en neii haha, þetta var bara venjuleg innilaug þar sem það var ein regla: allar konur þurfa að vera með sundhettu.. Þegar konan kom og sagði mér að setja sundhettuna á mig þá sagði ég bara pabbanum að ég ætlaði út í sólbað þangað til hann væri búinn að synda! Ég hef aldrei sett á mig sundhettu og ætla mér ekki að gera það bráðlega. Eftir sundið fórum við svo í hádegismat til systur mömmunar, og þar hitti ég ömmuna og afann og alla, það var mjög fínt! 



Það sætasta sem ég hef séð, langaði að stela honum úr búðinni!


Flottar í hárþvotti og naglasnyrtingu


Bíó stuð


Mmm Macdonalds



Þrátt fyrir að mér er búið að leiðast alveg hrikalega og kann ekki mikið í spænsku og ekki búin að kynnast neinum þá er fjölskyldan samt búin að gera þetta rosalega auðvelt fyrir mig og ég er ekkert smá heppin með hana! 

Blogga næst þegar ég er byrjuð í skólanum :) 





Monday, September 3, 2012

Fyrstu dagarnir í Ekvador

Jæja þá er ég loksins komin til Ekvador!

Ferðalagið var rosalega langt, við flugum til Boston og svo Miami og svo flug til höfuðborgar Ekvador, Quito. Þegar við komum loksins til Quito vorum við dauðþreytt eftir allt ferðalagið svo að við vorum himinlifandi að fá að vita að við gistum eina nótt á hóteli. Sem betur fer þurfti ég ekki að fara í lengra ferðalag því ég mun búa hér í Quito næstu 10 mánuðina.


Sætastur að kveðja mig á flugvellinum

                                                   
                                             Quito um kvöldið þegar við komum

                                                         
                                                          Ekvador krakkarnir


                                                          Flottar í Afs bolunum


Á hótelinu með fallegu Quito í bakgrunn

 Daginn eftir átti Sebastian (maður sem vinnur á afs skrifstofunni) að sækja mig klukkan hálf 3 á hótelið og svo átti host fjölskyldan mín að koma að sækja mig á skrifstofuna. Á leiðinni á skrifstofuna segir Sebastian mér að host fjölskyldan mín "had an emergency" svo að þau geta ekki tekið á móti mér fyrr en eftir einn mánuð.. Þetta var mjög mikið sjokk og ég var ekki alveg undirbúin fyrir þetta, ég var alveg nógu stressuð að hitta host fjölskylduna, en allt í einu var ég komin með aðra fjölskyldu, welcome fjölskyldu. Þegar við komum á skrifstofuna tóku tveir "krakkar" á móti mér, 18 ára strákur og 21 árs stelpa. Þau heita Leo og Victoria og eru systkini í welcome fjölskyldunni minni. Þau eru alveg rosalega nice og eru einu í fjölskyldunni sem kunna einhverja ensku. Úti tók kærasti Victoriu, Gaston og litla stelpan þeirra Bianca á móti okkur og keyrðum við heim í húsið þeirra. Þau eiga ss. heilt hús á 4 hæðum, ég bý á efstu hæðinni í riisa íbúð með útsýni yfir alla borgina!

                                         
                                      Quito um morguninn útum gluggan á hótelinu


                                             Ég og Una á smá göturölti í Quito


Fjölskyldan er alveg yndisleg sem ég er hjá núna, ég veit ekki mjög mikið um þau því að ég fékk enga umsókn eða neitt svoleiðis, en hún samanstendur af mömmu, pabba, 2 bræðrum, Leo og Jorge og einni systur, Victoriu,. Jorge á eina litla 5 ára stelpu, Belen, hún er mesta krútt sem ég veit um, alltaf að tala við mig á spænsku og ég skil varla orð.. Victoria á líka litla stelpu sem er 2 ára og heitir Bianca. Ég er búin að vera mest með Leo því að við búum á sömu hæð og hann talar góða ensku, hann er rosalega fínn og búinn að hjálpa mér mikið með spænskuna og að þýða allt sem mamman og pabbinn eru að segja.



                                                           Sæta Belen


                               Leo hostbróðir minn að sýna trommu hæfileika sína


                            Kona Jorge hostbróður míns, mamman, Leo og Belen


Á laugardaginn fórum ég og Leo á lítinn markað sem seldi allskonar dót, skartgripi, töskur, föt, mat, minjagripi og allt mögulegt, ég elska svona markaði svo að ég mun pottþétt fara þangað aftur! Á sunnudaginn fór ég svo með mömmunni, Leo, konu Jorges og Belen á stað sem heitir Mitad del mundo sem að línan á milli Suður og Norðurhvels jarðar er, miðbaugurinn. Í gær stóð ég ss. á Norður og Suðurhveli jarðar sem er mjög áhugavert. Það sem er líka alveg rosalega áhugavert er að ég gerði ehv sem ég mundi aldrei gera í lífi mínu, ég hélt á viðbjóðslegustu pöddu sem til er! Hún er riisastór, svört, með spjót á nefinu eða ehv, hún heitir Dynastes Neptunus ef einhverjum langar að sjá þetta kvikindi.. Og það ógeðslegasta var tilfinningin, ég hef aldrei verið jafn hrædd á æfi minni, það var eins og hún væri með klær sem stungust inn í mig og í hvert skipti sem hún hreyfði sig kipptist ég við og skalf af hræðslu. En ég var algjör kjúklingur miðað við Leo, hann hélt á alveg eins pöddu og ég og TARANTÚLU! En þetta var allavega lífsreynsla, vona bara að ég þurfi ekki að gera þetta aftur.


                                                               Mitad del Mundo


                                                           Miðbaugurinn


                           Ég standandi a bæði Norður og Suðurhveli jarðar


Ég á báðum hvelunum


                                     Leo og ég með viiðbjóðslegu pöddurnar!


                                           TARANTÚLAN sem að Leo hélt á..


                                Dansarar í þjóðbúningum að dansa þjóðdans


                                           Á safninu í Mitad del Mundo


Þessir 4 dagar sem ég er búin að vera hérna í Ekvador eru búnir að vera mjög góðir, þetta er búið að vera skemmtilegt, áhugavert, fyndið, leiðinlegt og sárt, heimþráin er búin að vera sterk, en fjölskyldan er búin að gera þetta mjög auðvelt fyrir mig með því að vera svona yndisleg og reyna að gera þetta skemmtilegt fyrir mig fyrstu dagana, sem eru erfiðustu dagarnir. Næstu dagar munu líka vera mjög hægir að líða hugsa ég, ég byrja ekki í skólanum fyrr en í næstu viku og allir eru í vinnu og skóla eftir klukkan 12 svo að ég er bara ein heima að láta mér leiðast, svo að ég hlakka rosalega til að fara að byrja í skólanum og kynnast fólki og gera eitthvað annað en að liggja uppí rúmi að horfa á Sex and the city eða læra spænsku á youtube. Spænskan er samt alltaf að koma meira og meira, litla Belen er búin að hjálpa mér mikið og líka mamman.


                                           Ég og sæta Belen á Mitad del Mundo


                              Litlu sætu "frænkur" mínar, Belen og Bianca


                                                          Aðeins of sætar!


Það er líka margt öðruvísi hérna í Ekvador og heima á íslandi, td:
-Enginn notar belti og það eru ekki barnabílstólar, og ef þeir eru þá eru börnin bara laus í stólnum..
-Ég má ekki fara út eftir 9 því að hverfið sem ég á heima í er svo hættulegt
-Þjóðarréttur Ekvador er Naggrís, þau buðu mér naggrís á teini um daginn, en neiii
-Umferðarreglurnar eru þær: það eru engar umferðarreglur
-Ég heyri sírenur í sjúkrabílum og lögreglubílum á 5 mínútna fresti
-Maturinn er svo mikill og öðruvísi að ég er ALLTAF södd
-Það eru bananar í öllu, mjög skemmtilegt, banana kakó, bananasúpa, bananakökur og allt..
-Allir bílarnir flauta á mig og allir stara af því að ég er "stór", "ljóshærð" og "bláeygð" allavega miðað við fólkið hérna
-Það má ekki henda klósettpappínrum í klósettið, það er alltaf ruslatunna við hliðiná sem maður hendir pappírnum í.. mmm..
-Það er alltaf sól hérna, meðalhitinn allan ársins hring er 20°, sem er freekar fínt
En þetta er alveg rosalega falleg borg þó að það sé ekki alveg jafn hreint hérna og hljóðvært og á Íslandi, þá er allaveg mun heitara og sól allan ársins hring!

Ég vona að þið hafið haft gaman að blogginu, blogga meira þegar ég er búin að fara í skólann og svona. Endilega commentið :)

Þangað til næst!