Núna er ég komin til fjölskyldunnar sem ég átti alltaf
að fara fyrst til, hélt að ég ætti ekki að koma hingað fyrr en eftir mánuð en
svo var ekki, þetta var víst bara einhver misskilingur. Ég er búin að vera hjá
þeim í næstum 2 vikur og lýst mér bara ofboðslega vel á þau. Þau eiga heima í
risastóru húsi á 4 hæðum og ég er ein á neðstu hæðinni með sérklósett og alles,
mjög fínt! En þau eru allt öðruvísi en fjölskyldan sem ég var fyrst hjá, þau
eru miklu ríkari, fínni og svolítið snobbuð.. Þegar þau komu að sækja mig
þangað sem ég bjó fyrst þá horfðu þau á húsið og spurðu með þvílíkum
fyrirlitningartón, “bjóstu hérna?” og ég alveg “jáá.. og fannst það rosalega
fínt!” En þau eru samt ekki alltaf svona, eru rosalega yndisleg og vilja gera
allt fyrir mig, eins og það fyrsta sem þau sögðu þegar við komum að húsinu í
fyrsta skipti var, “þetta er húsið okkar, nei fyrirgefðu núna er þetta líka
húsið þitt” sem mér fannst rosalega gott að heyra.
Sæta fjölskyldan mín
Húsið mitt
Ég og sæta frænka mín
Sæti voffinn minn nýbúinn í baði
Fyrstu helgina sem ég var hérna hjá þeim fórum við á
ströndina, þau eiga íbúð á ströndinni sem er mjög fín en þau eru að fara að
kaupa aðra sem er þvílíkt flott. Við fórum með fjölskyldu mömmunnar, systur
hennar og dóttur og bróður hennar, konu og strákunum þeirra 2. Eftir 5 tíma
keyrslu komum við loksins á ströndina og varð ég fyrir þvílíkum vonbrigðum þar
sem það var engin sól.. Það var meiri sól í Quito, lengst upp í fjöllunum, en
allavega þá gat ég ekkert gert í því, en þeim fannst þetta voða nice þar sem ég
held að þau þoli ekki sól, enda eru þau nú þegar mjög brún og vilja ekkert vera
að tana, annað en ég. Um kvöldið fórum við svo á þvílíkt flottan pizza stað á
stað sem heitir Casa Blanca, það er lítill bær sem rosalega ríkt fólk á heima
og húsin eru öll hvít. Á laugardeginum var svo sem betur fer ekkert smá gott
veður, glampandi sól og blíða, þá loksins gat ég verið í smá sólbaði, á meðan
þau voru öll undir sólhlíf allan daginn.. Það kvöld fórum við svo á rosalega
stórann markað og eftir á fórum við á salsa stað sem var mjög gaman. Ég þarf
virkilega að fara að læra salsa svo að ég passi eitthvað inn í hérna..
Við sundlaugina á ströndinni
Sætu systur mínar og frænka og frændi
Sætasta barn sem til er
Svo góð pizza, mm..
Á salsabarnum með frænku og pabbanum
Fallega ströndin
En síðustu vikurnar eru ekki búnar að vera skemmtilegustu
vikur lífs míns, því ég er ekki ennþá byrjuð í skólanum svo að mér er búið að
leiðast alveg hrikalega á daginn. En ég á að byrja í skólanum í þessari viku
svo að vonandi verður þetta betra þá. Helgin var líka mjög fín, á föstudaginn
fór ég í bíó með fjölskyldunni, á Batman, og auðvitað á spænsku haha.. Ég
skildi ekki neitt og sofnaði svona 17 sinnum, en sem betur fer var ég búin að
sjá myndina svo að ég var allavega ekki að missa af neinu sérstöku. Eftir bíóið
fórum við svo og fengum okkur Macdonalds, það var unaðslegt, er búin að vera að
bíða eftir því lengi! Á laugardaginn fór ég svo með mömmunni og stelpunum í klippingu og fékk ég ekki
bara þvílíka greiðslu, endaði eins og fermingarbarn með ljóta greiðslu, een það
var bara gaman og að auki fékk ég rosalega fína naglasnyrtingu! Þegar við vorum
búnar allar í hár- og naglasnyrtingu kom pabbinn að sækja okkur og við fórum í
mallið að borða, þau gera það víst alltaf um helgar. Um kvöldið komu svo vinafólk
mömmunar og pabbans í matarboð og bjóst ég við kvöldi þar sem ég sæti, borðaði
og endaði með hausverk því að ég þyrfti að hlusta á svo mikla spænsku og skilja
voða lítið, eeen svo var ekki! Þetta var bara yndislegasta fólk sem ég hef hitt!
Þau voru 2 hjón, ein mjög ung og hin ekki mikið eldri, og þau töluðu eiginlega
bara ensku fyrir mig og voru endalaust að spyrja um Ísland og ef þau voru
eitthvað að tala á spænsku enduðu þau alltaf á að þýða allt fyrir mig og segja
mér hvað þau voru að tala um, sem var rosalega nice og þægilegt. Á sunnudeginum
fór ég svo í sund með pabbanum og hélt að þetta yrði voða fín útisundlaug þar
sem ég gæti bara legið og tanað, en neii haha, þetta var bara venjuleg innilaug
þar sem það var ein regla: allar konur þurfa að vera með sundhettu.. Þegar
konan kom og sagði mér að setja sundhettuna á mig þá sagði ég bara pabbanum að ég
ætlaði út í sólbað þangað til hann væri búinn að synda! Ég hef aldrei sett á
mig sundhettu og ætla mér ekki að gera það bráðlega. Eftir sundið fórum við svo
í hádegismat til systur mömmunar, og þar hitti ég ömmuna og afann og alla, það
var mjög fínt!
Það sætasta sem ég hef séð, langaði að stela honum úr búðinni!
Flottar í hárþvotti og naglasnyrtingu
Bíó stuð
Mmm Macdonalds
Þrátt fyrir að mér er búið að leiðast alveg hrikalega og
kann ekki mikið í spænsku og ekki búin að kynnast neinum þá er fjölskyldan samt
búin að gera þetta rosalega auðvelt fyrir mig og ég er ekkert smá heppin með
hana!
Blogga næst þegar ég er byrjuð í skólanum :)












