Tuesday, August 21, 2012

2. dagar í brottför

Hæhæ, ég heiti Ólöf Októsdóttir og er 18 ára snót á leiðinni í stærsta ævintýri lífs míns. Á fimmtudaginn fer ég ásam 2 stelpum og 1 strák til Ekvador, við millilendum í Boston og gistum þar í eina nótt og svo liggur leiðin til Miami og svo loks til Quito sem er höfuðborg Ekvador. Við erum öll að fara sem skiptinemar í 10 mánuði og verðum við öll í sitthvorum bænum.


Ég fékk fjölskyldu fyrir sirka 2 vikum og lýst mér alveg ofboðslega vel á hana. Ég bý í höfuðborginni Quito og er sú eina af íslensku krökkunum sem bý þar. Fjölskyldan samanstendur af foreldrum, Jose Fernando Torres 45 ára og Katty Eugenia Nunes 43 ára og svo mun ég eiga 2 litlar systur Maria 11 ára og Melissa 12 ára. Það verður alveg rosalega gaman að prófa að eiga loksins systur þar sem ég er eina stelpan á heimilinu í 4 systkina hópi, og svo eiga þau einn hund sem er frábært þar sem ég er mikill dýravinur.

Ég fékk að vita heimilisfangið þeirra í umsókninni en skil hvorki upp né niður, veit ekkert hverju ég á að leita að í google earth, en þetta er víst mjög norðarlega í Quito og það er víst vel efnaðri hluti Quito. Það fannst mér voðalega gott að heyra, er þá vonandi með rennandi vatn og netsamband.. En höfuðborgin er alveg hrikalega stór, það búa um 2.5 milljónir manna í borginni og er hún í 2850 metra hæð yfir sjávarmáli, sem gerir hana hæstu höfuðborg í heimi!



En ég ætla að reyna að vera eins dugleg og ég get að blogga, næsta blogg verður svo þegar ég verð komin til Ekvador. Er orðin alveg hrikalega spennt og smá stressuð, en þetta verður bara ævintýri!

Þar til næst, Ólöf.

No comments:

Post a Comment